Dagur tvö í knattspyrnuskólanum.

Dagur tvö í knattspyrnuskólanum. Knattspyrnuskóli Grétars Rafns hélt áfram í dag af fullum krafti og góðir gestir mættu í heimsókn.

Fréttir

Dagur tvö í knattspyrnuskólanum.

Knattspyrnuskóli Grétars Rafns.
Knattspyrnuskóli Grétars Rafns.
Knattspyrnuskóli Grétars Rafns hélt áfram í dag af fullum krafti og góðir gestir mættu í heimsókn.

Það var engin önnur en Siglfirðingurinn Sandra Sigurðardóttir landsliðsmarkvörður Íslands í knattspyrnu sem mætti á svæðið ásamt Þorláki Árnasyni.

Þorlákur er yfirþjálfari allra barna- og unglingaflokka Stjörnunnar úr Garðabæ og hefur auk þess starfað mikið fyrir KSÍ.

Sandra og Þorlákur tóku vel á því með krökkunum og ekkert gefið eftir.

Krafturinn og áræðnin skein úr andlitum þátttakenda í knattspyrnuskólanum og ljóst er að þau eru að fá mikla og góða þjálfun.

Fleiri ljósmyndir frá knattspyrnuskólanum koma síðar.


Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst