Hin löngu landsþekkta leikkona.

Hin löngu landsþekkta leikkona. Hin löngu landsþekkta leikkona og leikstjóri Edda Heiðrún Backman sýnir nú vatnslitamyndir sínar í Svörtu kríunni að

Fréttir

Hin löngu landsþekkta leikkona.

Edda Heiðrún Bacmann.
Edda Heiðrún Bacmann.

Hin löngu landsþekkta leikkona og leikstjóri Edda Heiðrún Backman sýnir nú vatnslitamyndir sínar í Svörtu kríunni að Eyrargötu 2. Sölusýningin verður opin milli tvö og fimm laugardaginn 30. ágúst og sunnudaginn 31. ágúst og eru allir velkomnir.


Síðla sumars 2008 ákvað Edda Heiðrún að takast á við nýja listgrein og hóf að mála með pensil í munni af miklum áhuga og vaxandi listfengi. Hún hefur síðan spreytt sig á olíumálverkum, vatnslitaverkum og málun á gler og keramik. Flest verkin á sýningunni eru unnin í MS-setrinu og á Endurhæfingardeildinni á Grensási. Á sýningunni um helgina mun hún sýna hvernig hún málar myndirnar.
 

Edda Heiðrún er félagi í alþjóðlegum samtökum The Association og Mouth and Foot Painters, en þar hlaut hún inngöngu haustið 2009. Leiðbeinandi hennar og aðstoðarmaður við listmálun er Derek K. Mundell. Samtökin eru alþjóðleg samtök í eigu listamannanna sjálfra. Í dag eru meðlimir um 800 listamenn í 76 löndum. Allir eiga þeir það sameiginlegt að mála annað hvort með pensil í munninum eða á milli tánna. 


Texti: Aðsendur.

Myndir: GJS.




Athugasemdir

21.maí 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst