Elín Gísla hleypur og hleypur

Elín Gísla hleypur og hleypur Hún Elín Gísla er einhver sú duglegasta hlaupadrottning sem ég ţekki.

Fréttir

Elín Gísla hleypur og hleypur

Elín Gísla hleypur og hleypur

 
Hún Elín Gísla er einhver sú duglegasta hlaupadrottning sem ég þekki. 
 
Elín tók þátt í Reykjavíkurmaraþoninu sem var á laugardagsmorgni fyrir menningarnótt. Eins og ég skil þetta þá hljóp hún 42.2 kílómetra og varð í þriðja sæti í Íslandsmeistaramótinu. Þegar maður sér að einhverjir eru að hlaupa 42 kílómetra hugsa ég alltaf um það að ég þurfi nauðsynlega að leggja mig. Ég verð bara þreyttur á því að hugsa um þetta. 
 
En ég geri bara eins og Jón Gnarr , ég ímynda mér bara að ég sé að hlaupa, og yfirleitt geri ég það frekar en að telja kindur þegar ég á erfitt með svefn því þá sofna ég alveg á stundinni.
 
En Elín er greinilega hörkunagli sem kallar ekki allt ömmu sína þegar kemur að hlaupum.
 
Elín sendi mér nokkrar myndir , bæði hlaupandi og svo á verðlaunapalli.
 
 
elíngísla
Hérna er Elín kominn 10 kílómetra.
 
elíngísla
19 kílómetrar.
 
elíngísla
Hérna er Elín kominn 30 kílómetra.
 
elíngísla
Kominn 40 kílómetra. Óskar maður Elínar er hægra megin á myndinni.
Hann er líka mikill hlaupari.
 
elíngísla
Við Arnarhól 42 kílómetrar alveg að klárast, þarna eru 200 metrar í mark.
 
elíngísla
Hérna er Elína að taka við verðlaunapening fyrir 3ja sætið í Íslandsmeistaramótinu.
Elín hljóp á tímanum 3.44.11
 
 
 
 
 
 
 
 

Athugasemdir

04.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörđur
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgiđ okkur á Facebook eđa Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst