Ungmennin í Ungmennafélaginu Glóa sópa að sér verðlaunum

Ungmennin í Ungmennafélaginu Glóa sópa að sér verðlaunum Aldursflokkamót UMSE á Akureyri fór fram í síðustu viku

Fréttir

Ungmennin í Ungmennafélaginu Glóa sópa að sér verðlaunum

Aldursflokkamót UMSE á Akureyri fór fram í síðustu viku
 
Þar voru krakkar frá Ungmennafélaginu Glóa á Siglufirði að keppa og það er óhætt að segja að þeim hafi gengið ljómandi vel.
 
Elín Helga keppti í 2 greinum í flokki 12-13 ára stúlkna og vann gullverðlaun í þeim báðum. 

Elín Helga vann gullverðlaun í sleggjukasti og kringlukasti. Í sleggjunni setti hún jafnframt siglfirskt aldursflokkamet.Auk þess sigraði hún  í spjótkasti og hlaut brons í 60 metra grindahlaupi þar sem hún bætti aldursflokkamet sitt frá síðasta móti.

Björgvin Daði hélt uppteknum hætti og sankaði að sér verðlaunum í flokki 14-15 ára stráka, þar sem hann er á yngra ári. Hann hlaut silfurverðlaun í hástökki og 100 metra grindahlaupi, brons í langstökki og varð 4. í spjótkasti. Hann setti siglfirsk aldursflokkamet í öllum greinunum og er meðal 5 bestu á landinu í sínum aldursflokki í öllum þessum greinum og fleirum til.
 Auk þess vann hann til gullverðlauna í 600 metra hlaupi í sínum flokki, 14-15 ára stráka, þar sem hann er á yngra ári. Hann hljóp nær keppnislaust á frábærum tíma 1:35.98 mín. sem er bæði félagsmet hjá Glóa og siglfirskt aldursflokkamet og er einnig fjórði besti tími sem 14 ára strákur hefur hlaupið á frá upphafi á landinu samkvæmt afrekaskrá Frjálsíþróttasambandsins.
 Í 100 metra hlaupi varð hann í 3. sæti eftir hörkuspennandi hlaup og setti þar einnig félagsmet hjá Glóa og siglfirskt aldursflokkamet, hljóp hann á 7. besta tíma sem náðst hefur í hans aldursflokki á árinu, 12.82 sek, þrátt fyrir töluverðan mótvind.
 Í kúluvarpi náði hann ekki alveg sínu besta og hafnaði í 5. sæti.
 
Amalía Þórarinsdóttir, 9 ára, keppti í kúluvarpi með 10-11 ára stelpum og nældi sér þar í silfurverðlaun með kasti upp á 6,25 metra sem er 25 sm lengra en nokkur 9 ára stúlka hefur kastað á landinu frá upphafi samkvæmt afrekaskrá Frjálsíþróttasambandsins.
 

Upplýsingar fengust frá Þórarni Hannessyni.

Glæsilegur árangur hjá krökkunum.

Hér er heimasíða Glóa þar sem er farið ýtarlegar yfir keppnina.

Þórarinn sendi okkur nokkrar myndir af þessum hörkuduglega unga fólki sem býr í Fjallabyggð.

gloi

gloi

gloi

gloi

gloi



Athugasemdir

04.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst