Eyfirski safnadagurinn

Eyfirski safnadagurinn Eyfirski safnadagurinn verður haldinn laugardaginn 5. maí nk. Þann dag er frítt á öll söfn í Eyjafirði opið frá kl. 13-17. Þema

Fréttir

Eyfirski safnadagurinn

Síldarminjasafn Íslands
Síldarminjasafn Íslands
Eyfirski safnadagurinn verður haldinn laugardaginn 5. maí nk. Þann dag er frítt á öll söfn í Eyjafirði opið frá kl. 13-17. Þema ársins er tónlist á söfnum.

Sigurhæðir. Kl. 15 verður fallað um Matthías og tónlistina í lífi hans. Boðið upp á kaffi og kleinur.

Síldarminjasafn Íslands. Gömlu síldarlögin; harmonikuleikur og söngur.

Ljóðasetur Íslands á Siglufirði. Ljóðaupplestur og trúbador tekur lagið.

Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar á Siglufirði: Kvæðamenn koma fram kl. 14, 15 og 16.

Byggðasafnið Hvoll á Dalvík. Kl. 14 Kristjana Arngrímsdóttir syngur nokkur vísna- og þjóðlög.

Hús Hákarla Jörundar í Hrísey. Þar óma íslensk og erlend sönglög, sungin af Hreini Pálssyni frá Hrísey. Einnig verður opið í Holti.

Smámunasafnið, Sólgarði Eyja_arðarsveit. Reynir Schiöth spilar létt lög.

Gamli bærinn í Laufás. Kl. 14 Nemendur frá Tónlistarskóla Eyja_arðar spila á fiðlur fyrir gesti. Hljóðfærasýning og munnhörpuleikur.

Leikfangasýningin Friðbjarnarhúsi. Leikföng frá liðinni öld, þ.á.m. hljóðfæri. Barnalög spiluð.

Nonnahús. Kl. 15 Farandleikarinn Karl Hallgrímsson spilar og syngur. Kanntu að spila á púkaflautu?

Minjasafnið á Akureyri. Kl. 13:15 Helgi Þórsson segir frá langspilum og gefur tóninn. Sýning á hljóðfærum og hljóðgjafagripum. Kl. 14 Farandleikarinn Karl Hallgrímsson spilar og syngur í Minjasafninu.

Davíðshús. Kl. 16 Farandleikarinn Karl Hallgrímsson spilar og syngur. Hvað eru mörg hljóðfæri í húsinu? Lék Davíð á eitthvert þeirra? Búðu til ljóð með orðum úr ljóðum Davíðs.

Amtsbókasafnið. Ókeypis útlán á allri tónlist, og dans- og söngvamyndum. Tónlistarbókum stillt upp. Afgreiðslutími Amtsbókasafnsins verður kl. 11-16 þennan dag.

Útgerðarminjasafnið á Grenivík. Boðið upp á harðfisk og rifna hausa undir ómi sjómannalaga.

Friðland fuglanna, Húsabakka í Svarfaðardal

Náttúrugripasafnið í Ólafsfirði

Sjónlistamiðstöðin á Akureyri

Flugsafn Íslands á Akureyri

Iðnaðarsafnið á Akureyri

Söngur, Hljóðfæraleikur, Vísnasöngur, Rímnakveðskapur, Ljóðasöngur, Gítarspil

Texti: Heimasíða Fjallabyggðar

Mynd: GJS

 

 


Athugasemdir

23.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst