Fegrun umhverfis við smábátabryggjuna
Fyrir tveimur vikum lauk Rauðka við að gróðursetja Viðju umhverfis húsbílastæði sitt við smábátahöfnina á Siglufirði, en nú hefur fyrirtækið hafist handa við að hlaða grjótvegg umhverfis svæðið.
Undir dyggri leiðsögn Vals, garðyrkjustjóra Fjallabyggðar, prýða nú starfsmenn Rauðku hafnarsvæðið með grjótvegg sem umlykur húsbílastæði fyrirtækisins. Stefnt er á að hleðslu veggsins ljúki í vikunni og er það einn liður fyrirtækisins í að fegra umhverfið fyrir verslunarmannahelgina.
Auk hleðslu veggjarins hefur fyrirtækið nú hafist handa við að reisa stillansa og lekta Danna (bláa húsið) og mun í beinu framhaldi ráðast í að skipta um þak á húsinu og klæða það að utan. Á næstu vikum munu Siglfirðingar því verða varir við miklar breytingar á húsinu.







Athugasemdir