Fimleikahringurinn heimsækir Fjallabyggð
Fimleikahringurinn mun heimsækja Fjallabyggð í næstu viku. Markmið Fimleikahringsins er að kynna fimleikaíþróttina fyrir landsbyggðinni og auglýsa keppni í fimleikum á Unglingalandsmóti UMFÍ sem fram fer á Egilstöðum um Verslunarmannahelgina.
Að fimleikahringnum standa Evrópumeistararnir í hópfimleikum frá því síðasta haust. Fimleikahringurinn mun halda sýningar og fimleikanámskeið fyrir alla krakka sem hafa áhuga sem hér segir:Þriðjudaginn 19. Júlí á Ólafsfirði 16:00-18:00 í íþróttahúsinu Ólafsfirði.
Miðvikudaginn 20. Júlí á Siglufirði 16:00-18:00 í íþróttahúsinu Siglufirði.
Aðgangur á sýningarnar er öllum frjáls. Kostnaður við þátttöku í námskeiði er 500 kr. og greiðist á staðnum.
Við hvetjum alla krakka og foreldra til að koma og sjá Evrópumeistarana okkar sýna listir sýnar og taka í framhaldinu þátt í skemmtilegu námskeiði þar sem grunnæfingar í fimleikum verða kenndar af meisturunum sjálfum.
Athugasemdir