Fjallabyggð mun greiða 854 milljónir kr. í veiðigjöld
sksiglo.is | Almennt | 04.05.2012 | 11:00 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 286 | Athugasemdir ( )
Skv.
skýrslu þeirra Daða Más Kristóferssonar dósents við Háskóla Íslands og
Stefáns B. Gunnlaugssonar lektors við Háskólann á Akureyri sem unnin
var fyrir Atvinnuveganefnd Alþingis munu útgerðir í Fjallabyggð greiða
854 milljónir kr. í veiðigjöld verði kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar
samþykkt.
Um áhrif á byggðir segir Daði að megnið af kvótanum sé úti á landi og með veiðigjaldinu fari peningar frá hagkerfum landsbyggðarinnar í ríkiskassann.
Hann sagði og að auðvitað sjái menn ekki í hvað peningum yrði varið, eftir að ríkið nær þeim, en erfitt sé að sjá hvernig þessi skattlagning styrkti atvinnulíf á landsbyggðinni. Byggðaaðgerðirnar á móti séu dvergvaxnar.
Texti: Heimasíða Ramma
Mynd: GJS

Athugasemdir