Fjölskyldudagur Lions – sumardagurinn fyrsti
Mikil gleði var hjá Lionsmönnum, fjölskyldum þeirra og vinum á sumardaginn fyrsta en þá var skundað í Skútudal og fyrsti Fjölskyldudagur Lionsklúbbs Siglufjarðar haldinn.
Á síðasta fundi var ákveðið að á sumardeginum fyrsta skildu klúbbmeðlimir, fjölskyldur þeirra og vinir gera eitthvað skemmtilegt saman og þar sem veðrið lék við okkur þá lá best við að leika sér á sleðum og þotum í Skútudal sagði Guðný Kristinsdóttir formaður klúbbsins.
Gummi Eggerts mætti galvaskur á vélsleðanum þar sem hann dró mannskapinn upp brekkurnar þegar það hafði rennt sér niður. Dagurinn fór vel fram og hópurinn fór heim með bros á vör eftir vel lukkaða og skemmtilega samveru.
Lionsklúbbur Siglufjarðar óskar öllum gleðilegs sumars











Athugasemdir