Forsala hafin á bókinni um séra Bjarna

Forsala hafin á bókinni um séra Bjarna Hin nýja bók sem Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur er að skrifa um séra Bjarna Þorsteinsson tónskáld býðst nú í

Fréttir

Forsala hafin á bókinni um séra Bjarna

Sigríður Blöndal og Bjarni Þorsteinsson
Sigríður Blöndal og Bjarni Þorsteinsson
Hin nýja bók sem Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur er að skrifa um séra Bjarna Þorsteinsson tónskáld býðst nú í forsölu hjá Veröld á sérstöku tilboðsverði, 4.900 krónur í stað 6.990 króna. Bókin er væntanleg á markað í haust, en 14. október eru 150 ár síðan Bjarni fæddist.




Séra Bjarni hefur oft verið nefndur „faðir Siglufjarðar“ fyrir hlut sinn í uppbyggingu bæjarins á fyrstu áratugum tuttugustu aldar, en auk þess er hann þekktur fyrir þjóðlagasafn sitt sem var mikið þrekvirki. Undanfarna mánuði hefur Viðar unnið að ritun ævisögunnar og fundið ýmislegt forvitnilegt sem ekki hefur komið fram áður. Í bókinni verða fjölmargar myndir. „Þessi bók verður að prýða heimilisbókasöfn allra Siglfirðinga,“ segir á Facebook-síðu Siglfirðingafélagsins.

Slóð á forsöluna: http://www.verold.is/bjarnithorsteinsson

Meðfylgjandi mynd: Sigríður Lárusdóttir Blöndal og Bjarni Þorsteinsson í stofunni á Hvanneyri, sennilega um aldamótin 1900. 
Orgelið mun hafa verið í eigu Bjarna þegar hann samdi Hátíðarsöngvana og öll sín þekktu sönglög svo sem Ég vil elska mitt land, Kirkjuhvol og Systkinin.

Athugasemdir

09.október 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst