Framfarir í mælingum á mið-norðurlandi

Framfarir í mælingum á mið-norðurlandi Nýlega undirrituðu Stoð ehf. verkfræðistofa og Ísmar ehf. samstarfssamning um uppsetningu og rekstur GPS

Fréttir

Framfarir í mælingum á mið-norðurlandi

Jón Tryggvi Helgason og Eyjólfur Þórarinsson
Jón Tryggvi Helgason og Eyjólfur Þórarinsson

Nýlega undirrituðu Stoð ehf. verkfræðistofa og Ísmar ehf. samstarfssamning um uppsetningu og rekstur GPS leiðréttingastöðvar í Skagafirði. Leiðréttingarstöðin verður á landsvísu, hluti af VRS kerfi Ísmar, sem nú þegar hefur VRS-stöðvar í rekstri á Akureyri, Húsavík, Egilsstöðum, Höfn í Hornafirði, Ísafirði, Borgarnesi, Selfossi, Keflavík og Reykjavík.

Með tilkomu hins nýja búnaðar er brotið blað í mælingaraðferðum á svæðinu.
Mælingamenn þurfa ekki lengur að stilla upp fastri stöð til að vinna út frá, heldur hringja inn í VRS kerfi í gegn um GPRS gátt. Við það sparast mikill tími við uppsetningu ásamt ferðatíma að og frá föstu stöðinni til vinnusvæðis. Tímamunur við þetta verklag hefur verið mældur og sýna rannsóknir að umtalsverður tímasparnaður náist við að tengjast VRS í stað þess að nota eigin stöð. Ávinningurinn er háður stærð verkefnis og mælingartíma.

VRS kerfi Ísmar

Heimasíður samningsaðila eru :
Stoð ehf. verkfræðistofa www.stodehf.is
Ísmar ehf. www.ismar.is


Athugasemdir

28.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst