Gamlar minningar rifjast upp við ólík atvik
Þannig var að ég var að skoða myndir á siglo.is en þar rakst ég á þessa gömlu mynd. Fór þá að rifjast upp fyrir mér ferðir með móður minni til berja er ég var um 6- 7 ára.
Þótti "við hæfi" að velja sér aflaskip og auðvitað valdi ég Höfrung II. (gæti þó hafa verið III.) sem er hér á myndinni til hægri. síðan rakst ég þar á nokkarar myndir af bílstjórahetju yngri ára (ég átti mér margar fyrirmyndir já) en það var "Búddi á Sleitunni" eða Gísli Sigurðsson rútubílstjóri á Sleitustöðum. Þetta eru lítil dæmi um hvað það þarf lítið til að menn gleymi sér við myndskoðun, þarna skoðaði ég bæði skip og báta í amk 2 - 3 daga.
Athugasemdir