Gestkvæmt í humarvinnslu

Gestkvæmt í humarvinnslu Það hefur verið gestkvæmt í humarvinnslu Rammans í Þorákshöfn undanfarnar vikur. Þangað komu í heimsókn nemendur úr 8., 9.,

Fréttir

Gestkvæmt í humarvinnslu

Það hefur verið gestkvæmt í humarvinnslu Rammans í Þorákshöfn undanfarnar vikur. Þangað komu í heimsókn nemendur úr 8., 9., og 10. bekk Grunnskóla Þorlákshafnar, nemendur 5. bekkjar Flóaskóla og sveitastjórnarfólk úr Árnessýslu sem var á ferðinni í tengslum við héraðsnefndarfund.

Humarveiðar og vinnsla hafa gengið ágætlega það sem af er, en humarvertíðin hófst eftir páska og áformað er að hún standi fram eftir hausti. Jón á Hofi ÁR 42 og Fróði II ÁR 38 hafa aflað hráefnis fyrir humarvinnsluna til þessa og Reginn ÁR 228 mun bætast við í næstu viku.

Meðfylgjandi eru myndir sem teknar voru í áðurnefndum heimsóknum.



Heimasíða: Ramma h/f

 




Athugasemdir

21.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst