Glæsileg sýning í uppsetningu

Glæsileg sýning í uppsetningu Ég kikkaði á listamennina við uppsetningu á stórglæsilegri myndlistasýningu sem hefst í bláa húsinu við hliðina á gula

Fréttir

Glæsileg sýning í uppsetningu

Uppstyllingarpælingar
Uppstyllingarpælingar

Ég kikkaði á listamennina við uppsetningu á stórglæsilegri myndlistasýningu sem hefst í bláa húsinu við hliðina á gula húsinu á móti því rauða í dag klukkan 14:00.

Sýningin verður í dag, laugardaginn 13. April frá klukkan 14-18. Þar ætla nemendur á 3ja þrepi í myndlistabraut að sýna verkin sín. Þetta verður án efa virkilega flott sýning og alls konar myndir flæðandi þarna upp um alla veggi.

Listanemarnir sem sýna heita.

Sandra Finnsdóttir.
Atli Tómasson.
Sunna Björg Valsdóttir.
Hrönn Helgadóttir
Aldís Gísladóttir.

Vonandi láta sem flestir sjá sig.

Hér eru svo nokkra myndir sem ég tók á meðan það var verið að fínstilla og stilla.

Myndir og texti: Hrólfur Baldurs.

Stórglæsileg sýning í uppsetningu hjáMTR
Gísli Kristinsson húsvörður, ljósmyndari og alt múligt maður menntaskólans á Tröllaskaga.

Stórglæsileg sýning í uppsetningu hjáMTR
Sunna Björg Valsdóttir. Og Bergþór Morthens og Gísli Kristins að stilla af.

Stórglæsileg sýning í uppsetningu hjáMTR
Límbyssa þetta bara.

Stórglæsileg sýning í uppsetningu hjáMTR
Hrönn Helgadóttir og Sandra Finnsdóttir.

Stórglæsileg sýning í uppsetningu hjáMTR
Sandra Finnsdóttir var nýbúin að segja þeim að halda áfram.

Stórglæsileg sýning í uppsetningu hjáMTR
Þarna er allt á fullu. Takið eftir Atla Tómassyni. Hann er þessi blörraði. Ég tók örugglega 300 hundruð myndir þarna inni
og hann var að hreyfa sig á öllum myndunum sem ég tók af honum. Þið verðið bara að fara og sjá hann þarna á morgun
ef þið viljið sjá skýrari mynd að honum.


Stórglæsileg sýning í uppsetningu hjáMTR
Uppstyllingarpælingar.

Stórglæsileg sýning í uppsetningu hjáMTR
Sunna og Hrönn.

Stórglæsileg sýning í uppsetningu hjáMTR
Bergþór, Gísli, og Hrönn.

Stórglæsileg sýning í uppsetningu hjáMTR
Sunna og Sandra.

Stórglæsileg sýning í uppsetningu hjáMTR Stórglæsileg sýning í uppsetningu hjáMTR
Bergþór að spöggulera.

Stórglæsileg sýning í uppsetningu hjáMTR


Athugasemdir

30.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst