Glæsilegt Boccia mót til minningar um Hrefnu Hermannsdóttur

Glæsilegt Boccia mót til minningar um Hrefnu Hermannsdóttur Íþróttafélagið Snerpa og afkomendur Hrefnu Hermannsdóttur, sem lést 19. Desember s.l., héldu

Fréttir

Glæsilegt Boccia mót til minningar um Hrefnu Hermannsdóttur

Ljósmyndari; SK
Ljósmyndari; SK

Íþróttafélagið Snerpa og afkomendur Hrefnu Hermannsdóttur, sem lést 19. Desember s.l., héldu Boccia mót 8. maí s.l. til minningar um Hrefnu. 

 

Mótið var haldið í Íþróttahúsinu og var mjög skemmtilegt, þar sem keppendur voru frá Snerpu, Eldri borgurum og afkomendum Hrefnu.

 

Úrslit urðu:  
1.  Guðbjörg Friðriksdóttir og Guðmundur Þorgeirsson, 
2. Líney Bogadóttir og Auður Björnsdóttir, 
3. Björg Árnadóttir og Sigurjón Sigtryggsson, 
4.  María Lísa Thomasdóttir og Björn Jónasson. 

Að móti loknu buðu afkomendur Hrefnu til kaffisamsætis að Skálarhlíð, þar sem fram fór verðlaunaafhending.  Mótið fór mjög vel fram undir styrkri stjórn Helgu Hermannsdóttur og höfðu allir hina bestu skemmtun af.

Myndband frá mótinu má skoða hér


Athugasemdir

19.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst