Glæsilegt Boccia mót til minningar um Hrefnu Hermannsdóttur
Íþróttafélagið Snerpa og afkomendur Hrefnu Hermannsdóttur, sem lést 19. Desember s.l., héldu Boccia mót 8. maí s.l. til minningar um Hrefnu.
Mótið var haldið í Íþróttahúsinu og var mjög skemmtilegt, þar sem keppendur voru frá Snerpu, Eldri borgurum og afkomendum Hrefnu.
Úrslit urðu:
1. Guðbjörg Friðriksdóttir og Guðmundur Þorgeirsson,
2. Líney Bogadóttir og Auður Björnsdóttir,
3. Björg Árnadóttir og Sigurjón Sigtryggsson,
4. María Lísa Thomasdóttir og Björn Jónasson.
Að móti loknu buðu afkomendur Hrefnu til kaffisamsætis að Skálarhlíð, þar sem fram fór verðlaunaafhending. Mótið fór mjög vel fram undir styrkri stjórn Helgu Hermannsdóttur og höfðu allir hina bestu skemmtun af.
Myndband frá mótinu má skoða hér



Athugasemdir