Gói og Baunagrasið Menningarhúsinu Hofi Sunnudaginn 7. apríl 2013
Barnaleikritið um Góa og Baunagrasið verður sýnt í menningarhúsinu Hofi sunnudaginn 7. apríl næstkomandi kl. 13:00.
-
Ævintýrið um Baunagrasið var frumsýnt í Borgarleikhúsinu í febrúar 2012.
-
Sýningin hefur notið mikilla vinsælda meðal ungu kynslóðarinnar og ekki síst meðal þeirra fullorðnu sem kunna vel að meta hnyttinn húmor og spuna þeirra félaga.
-
Gói er sendur af móður sinni á markaðinn til að selja Skjöldu gömlu sem er eina mjólkurkýrin þeirra. Hann á langan veg fyrir höndum og áður en á leiðarenda er komið tekur ferðalagið óvænta stefnu þar sem þrjár töfrabaunir koma við sögu. Upp spinnst spennandi ævintýri með skemmtilegri tónlist, söng, dans og leikhúsbrellum. Risinn, hænan sem verpir gulleggjum, sjálfspilandi harpan og allir þorpsbúar mæta til leiks í Hamraborg í menningarhúsinu Hofi.
Gói og Baunagrasið hefur notið mikilla vinsælda í Borgarleikhúsinu og hlotið frábærar viðtökur á meðal ungu kynslóðarinnar og ekki síst meðal þeirra fullorðnu. Gagnrýnendur hafa lofað þá félaga Góa (Guðjón Davíð Karlsson) og Þröst Leó Gunnarsson í hástert og gefið sýningunni fjórar til fimm stjörnur. Þar að auki var sýningin tilnefnd til Grímunnar árið 2012 sem besta barnaleikritið, eitt þriggja verka.
Hér er á ferðinni sannur leikhúsglaðningur fyrir alla fjölskylduna.
Miðasala í síma 450-1000 og á menningarhus.is
Baunagrasið er á facebook:
http://www.facebook.com/pages/Baunagrasi%C3%B0/208859389143463
Framleiðandi: Baunagrasið í samstarfi við Borgarleikhúsið
Athugasemdir