Hannes Boy Café

Hannes Boy Café Síðastliðinn föstudag réðust starfsmenn Rauðku, með dyggri aðstoð frá Gumma Eggerts, í að merkja veitingahús sitt Hannes Boy Café.  

Fréttir

Hannes Boy Café

Hannes Boy Café. Ljósmyndari; Hörður Júlíusson
Hannes Boy Café. Ljósmyndari; Hörður Júlíusson

Síðastliðinn föstudag réðust starfsmenn Rauðku, með dyggri aðstoð frá Gumma Eggerts, í að merkja veitingahús sitt Hannes Boy Café.

 

Forvitnum ferðamönnum varð þó fljótt ljóst að ekki var hægt að sækja veitingar í Hannes Boy Café að svo stöddu en eins og Siglfirðingum er kunnugt er stefnt að því að rekstur hefjist í húsinu sumarið 2010.

Mikið hefur verið spurt um nafnið Hannes Boy, af hverju útlenskt nafn?
Siglfirðingum er hinsvegar flestum kunnugt um tildrög nafnsins sem er í raun alíslenskt og það sem meira er, Siglfirskt í húð og hár. Veitingastaðurinn er nefnilega skírður í höfuðið á Hannesi Garðarssyni sjómanni frá Siglufirði sem gjarnan var kallaður Hannes Boy eða Bojarinn.

Hannes Garðarsson


Athugasemdir

21.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst