Hannes Boy Café
Síðastliðinn föstudag réðust starfsmenn Rauðku, með dyggri aðstoð frá Gumma Eggerts, í að merkja veitingahús sitt Hannes Boy Café.
Forvitnum ferðamönnum varð þó fljótt ljóst að ekki var hægt að sækja veitingar í Hannes Boy Café að svo stöddu en eins og Siglfirðingum er kunnugt er stefnt að því að rekstur hefjist í húsinu sumarið 2010.
Mikið hefur verið spurt um nafnið Hannes Boy, af hverju útlenskt nafn?
Siglfirðingum er hinsvegar flestum kunnugt um tildrög nafnsins sem er í raun alíslenskt og það sem meira er, Siglfirskt í húð og hár. Veitingastaðurinn er nefnilega skírður í höfuðið á Hannesi Garðarssyni sjómanni frá Siglufirði sem gjarnan var kallaður Hannes Boy eða Bojarinn.



Hannes Garðarsson




Athugasemdir