Hátíðarhöldin 17. júní í Fjallabyggð

Hátíðarhöldin 17. júní í Fjallabyggð Hátíðarhöldin 17. júní í Fjallabyggð fóru fram í Ólafsfirði að þessu sinni. Boðið var upp á ýmis skemmtiatriði.

Fréttir

Hátíðarhöldin 17. júní í Fjallabyggð

Hátíðarhöldin við Tjarnarborg
Hátíðarhöldin við Tjarnarborg
Hátíðarhöldin 17. júní í Fjallabyggð fóru fram í Ólafsfirði að þessu sinni. Boðið var upp á ýmis skemmtiatriði. Ræðumaður dagsins var Katitas Skarphéðinsdóttir Neff og fjallkonan að þessu sinni var Harpa Hrönn Harðardóttir. 

Hljómsveitin Tröllaskagahraðlestin skemmti fólki og var börnum boðið í hoppukastala og margt fleira. Stjórnandi hátíarinnar var Gísli Rúnar Gylfason.

Á Siglufirði skemmtu börn og fullornir sér vel í blíðskaparveðri á Rauðkutorgi. Börn fóru í mínígolf, útitaflið var mjög vinsælt sem og strandblaksvöllurinn trúbadorinn Daníel Pétur Daníelsson spilaði fyrir gesti.

Mikið var að gera á Kaffi Rauðku þar sem gestir fengu sér vöfflukaffi og ýmislegt góðgæti. Um kvöldið voru síðan frábærir tónleikar með hljómsveitinni Mannakornum.



Gísli Rúnar Gylfason



Ræðumaður dagsins Karítas Skarphéðinsdóttir Neff



Fjallkonan Harpa Hrönn Harðardóttir



Hljómsveitin Tröllaskagahraðlestin









Ólafsfjarðartörn



Bátadokkin og Rauðkutorg







Mínígolf



Útitafl



Ungdómurinn að róla sér



Útitaflið



Salka Heimisdóttir og Amalía Þórarinsdóttir



Systurnar sú eldri Hildigunnur og Kristín Hólmfríður Hauksdætur



Daníel Pétur Daníelsson trúbador



Hér hefur Daníel fengið til sín góða gesti

Texti og myndir: GJS






Athugasemdir

19.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst