Igor á leiðinni

Igor á leiðinni Vetrarlegt var um að litast þegar Siglfirðingar vöknuðu í morgun, snjóþekja lá yfir fjöllum og náði vel niður í hlíðarnar.  Undanfarna

Fréttir

Igor á leiðinni

Hólshyrnan var vetrarleg að sjá í morgun
Hólshyrnan var vetrarleg að sjá í morgun
Vetrarlegt var um að litast þegar Siglfirðingar vöknuðu í morgun, snjóþekja lá yfir fjöllum og náði vel niður í hlíðarnar. 

Undanfarna daga hefur víða gránað í fjöll og því ljóst að Siglfirðingar fá góðan forsmekk af vetrinum.

Þetta stendur þó ekki lengi yfir og allt útlit fyrir að fellibylurinn Igor sendi til okkur hlýja strauma suður úr höfum.

Það er óskandi að þessar suðlægu áttir staldri aðeins við, þó ekki væri nema fram yfir opnun Héðinsfjarðarganga.



Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst