Igor á leiðinni
sksiglo.is | Almennt | 22.09.2010 | 11:00 | Bergþór Morthens | Lestrar 337 | Athugasemdir ( )
Vetrarlegt var um að litast þegar Siglfirðingar vöknuðu í morgun, snjóþekja lá yfir fjöllum og náði vel niður í hlíðarnar.
Undanfarna daga hefur víða gránað í fjöll og því ljóst að Siglfirðingar fá góðan forsmekk af vetrinum.
Þetta stendur þó ekki lengi yfir og allt útlit fyrir að fellibylurinn Igor sendi til okkur hlýja strauma suður úr höfum.
Það er óskandi að þessar suðlægu áttir staldri aðeins við, þó ekki væri nema fram yfir opnun Héðinsfjarðarganga.

Athugasemdir