ÍNN sjónvarpið í Rauðku
sksiglo.is | Almennt | 22.07.2011 | 23:30 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 922 | Athugasemdir ( )
Mikið var um
að vera á Siglufirði í dag. Ingvi Hrafn sjónvarpsstjóri ÍNN var að taka viðtöl
við Róbert Guðfinnsson og Finn Yngva Kristinsson um uppbyggingu og
framtíðarhorfur Rauðku.
Steini Vigg fór á sjóstöng með nokkra áhugasama veiðimenn, þegar komið var í land var gert að aflanum og hann grillaður.
Sjóstangveiðimót hófst í dag. 46 keppendur á 12 bátum taka þátt í mótinu og í lok fyrri dagsins var veiði góð. Mikill fjöldi fólks var á bryggjunni til að fylgjast með komu bátanna.
Kiwanismenn og starfsmenn frá fiskmarkaði sem vikta og telja.
Harmonikkuspil og gítartónar hljómuðu um bryggjuna frá þeim félögum Sigurjóni Steinssyni og Ómari Haukssyni.
Kl. 16:00 las Örlygur Kristfinnsson upp úr bók sinni Svipmyndir úr síldarbæ í Ljóðasetri Íslands kafla um Stein Steinarr og segir frá veru Steins á Siglufirði.
Gestir á Ljóðasetrinu.
Gestir á Ljóðasetrinu.
Það má segja að sá fjöldi fólks sem í bænum er hafi fengið eitthvað við sitt hæfi.
Texti og myndir: GJS
Athugasemdir