Jólin kvödd og Kertasníkir er farinn heim
sksiglo.is | Almennt | 07.01.2014 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 498 | Athugasemdir ( )
Þrettánda og síðasta dag jóla sem var í gær stóð Kiwanisklúbburinn Skjöldur fyrir þrettándabrennu og flugeldasýningu í samvinnu við 10 bekk G.F.
Samkvæmt Wikipedia trúðu menn því að á þrettándanum myndu kýr öðlast mannamál, selir kasti hamnum og að
það væri alveg sérstaklega heppilegt að sitja á krossgötum til að komast í samband við álfa og huldufólk á þessum degi
og Kertasníkir skottast svo að sjálfsögðu heim til sín.
Og 6. janúar var eitt sinn talinn fæðingardagur Krists.
En ef við snúum okkur nú að brennunni og flugeldunum þá var ég ekki með vatnshelda myndavél aðra en Gopro vélina þannig
að núna kemur þetta í myndbandsformi.
Athugasemdir