Jón Andrjes, Stebbi Fidda og gamla dótið
sksiglo.is | Almennt | 23.01.2014 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 655 | Athugasemdir ( )
Ég kíkkaði niður í Olís búðina til þeirra Jóns
Andrjesar og Stebba Fidda og fékk að sjá gamla dótið sem Jón Andrjes hefur haldið til haga í fjölda mörg ár. Faðir Jóns
Andrjesar var líka mjög duglegur að passa upp á að gamla dótið sem allir voru hættir að nota væri haldið til haga.
Svo að sjálfsögðu er líka gaman að skoða þá félaga
Jón Andrjes og Stebba Fidda , en að skoða þá félaga er eiginlega alveg einstök upplifun og ég hvet alla til að fara og virða
þá fyrir sér stutta stund og jafnvel spjalla við þá líka, það er nefnilega bara alveg hin ágætasta skemmtun að spjalla við
þá um hitt og þetta. Stundum er meira að segja gaman að spjalla við þá um allt þetta sem er á milli himins og jarðar líka.
Þeir ættu eiginlega að vera á safni fyrir skemmtilega og hressa karaktera
strákarnir.
Jón Andrjes er fjórði ættliður sem sér um umboð
Olíuverslunar Íslands á Siglufirði. Fyrstur var lang afi hans Jón Jónsson, þá afi hans Andrés Hafliðason og svo faðir
Jóns Andrjesar, Hinrik Andrésson.
Jón er með alveg ótrúlega merkilega hluti sem flest allir eða jafnvel allir
tengjast Olíuverslun Íslands frá fyrri árum. Hvort sem það eru skilti, bækur, olíulampar, merki, plögg, kvekjarar og jafnvel gamlar
tóbaksdósir, olíusýni og olíusýna-glös og margt, margt fleira.
Ég mæli með því að þið kíkið reglulega á
þá félaga Jón Andrjes og Stebba Fidda niður í Olís búð, það er alveg á hreinu að þar er tekið sérstaklega
vel á móti mönnum.
Að sjálfsögðu fékk ég að taka nokkrar myndir til að sýna
ykkur sem eru hér fyrir neðan.
Jón Andrjes. Honum finnst svo rosalega gaman að láta taka myndir af sér eins og sést.
Stebbi Fidda eldhress með kaffibollann.
Olíusýnaglös.
Tunnumerki fyrir olíur sem Olíuverslun Íslands h.f. var með á árum áður.
"Sunna" Heimsins besta ljósaolía frá Olíuverzlun Íslands.
Castrol olíubrúsi.
Öskubakki, kveikjarar og eldspítur merkt Olís og Siglufirði. Það liggur við að maður sakni öskubakkanna sem maður sá á
hverju heimili hér áður en nú þekkist þetta ekki þegar maður sér þennann.
Olíukönnur og olíubrúsar.
Hugsanlega gæti þetta "BP" gler-merki verið eitt af örfáum merkjum sem eftir eru í heiminum. Þetta var á ljósaskilti.



Athugasemdir