Jón Þorsteinn Reynisson fer hringinn?

Jón Þorsteinn Reynisson fer hringinn? Í maí 2012 ætlar Jón Þorsteinn að leggja upp í hringferð um landið og spila á alls 17 stöðum á ferðalagi

Fréttir

Jón Þorsteinn Reynisson fer hringinn?

Í maí 2012 ætlar Jón Þorsteinn að leggja upp í hringferð um landið og spila á alls 17 stöðum á ferðalagi sínu. Ferðin mun hefjast 2. maí í Hofsósskirkju og halda svo áfram austur á bóginn dagana þar á eftir.

Ferðin er farin að því tilefni að Jón er í haust að kveðja landið í bili en hann hefur framhaldsnám á harmoniku í Kaupmannahöfn nú í haust. Einnig er ferðin ætluð sem fjáröflun fyrir þá dvöl. Hér fyrir neðan eru upplýsingar um tónleikastaði og tíma.




2. maí á Hofsósi í Hofsósskirkju kl. 20:00, 4. maí í Siglufjarðarkirkju kl. 20:00, 5. maí Menningarhúsið Hof - Hamrar kl. 14.00, 5. maí Laugar í Reykjadal Breiðumýri kl. 20:30, 6. maí Egilsstöðum Egilsstaðakirkja kl. 14:00, 6. maí Eskifirði Eskifjarðarkirkja kl. 17:00, 7. maí Höfn Hafnarkirkja kl. 20:00, 8. maí Vík í Mýrdal Víkurkirkja kl. 20:30, 9. maí Hella Safnaðarheimilið kl. 20:00, 10. maí Skálholt Skálholtsdómkirkja kl. 20:30, 11. maí Reykjanesbær Ytri-Njarðvíkurkirkja kl. 20:00, 12. maí Tónberg (Tónlistarskóli Akraness) kl. 17:00, 12. maí Reykjavík Fríkirkjan í Reykjavík kl. 20:00, 13. maí Borganes Borganeskirkja kl. 16:00, 13. maí Búðardalur Hjarðarholtskirkja kl 20:30, 14. maí Hvammstangi Hvammstangakirkja kl. 20:00, 15. maí Sauðárkrókur Frímúrarasalurinn kl. 20:00.



Jón Þorsteinn Reynisson  harmonikuleikari

> http://www.jonthorsteinn.com/hringurinn.html

Texti og mynd: Aðsent

 





Athugasemdir

23.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst