Julia og Gero í Herhúsinu
Það er ávalt athyglisvert að sjá hvað um er að vera í Herhúsinu á Siglufirði en undanfarna daga hafa hjónin Júlia Lohman og Gero Grundmann unnið að hugmyndum sínum þar.
Sigló.is brá sér á kynningu hjá þeim fimmtudaginn síðastliðinn og komst að því hversu kraftmikið og skemmtilegt fólk er þar á ferð. Hjónin vinna mikið með efni sem finna má í náttúrunni en þemað þeirra er meðal annars að varðveita sögu efnanna. Má þar nefna að við notkun leðurs nýta þau það eins og það kemur fyrir án þess að fjarlægja burt það sem aðrir mundu kalla „skemmdir“. „Með þessu móti varðveitum við sögu skepnunnar sem leðrið tilheyrði“ nefndi Gero þegar hann sýndi myndir af hinum ýmsu verkum sem hjónin höfðu unnið gegnum tíðina.
Nánar má skoða verk þeirra hjóna á http://www.julialohmann.co.uk/

Mynd sótt á:
http://www.julialohmann.co.uk/work/gallery/cow-benches/




Athugasemdir