Julia og Gero í Herhúsinu

Julia og Gero í Herhúsinu Það er ávalt athyglisvert að sjá hvað um er að vera í Herhúsinu á Siglufirði en undanfarna daga hafa hjónin Júlia Lohman og

Fréttir

Julia og Gero í Herhúsinu

Julia og Gero. Ljósmyndari; Finnur Yngvi Kristinsson
Julia og Gero. Ljósmyndari; Finnur Yngvi Kristinsson

Það er ávalt athyglisvert að sjá hvað um er að vera í Herhúsinu á Siglufirði en undanfarna daga hafa hjónin Júlia Lohman og Gero Grundmann unnið að hugmyndum sínum þar.

 

Sigló.is brá sér á kynningu hjá þeim fimmtudaginn síðastliðinn og komst að því hversu kraftmikið og skemmtilegt fólk er þar á ferð. Hjónin vinna mikið með efni sem finna má í náttúrunni en þemað þeirra er meðal annars að varðveita sögu efnanna. Má þar nefna að við notkun leðurs nýta þau það eins og það kemur fyrir án þess að fjarlægja burt það sem aðrir mundu kalla „skemmdir“. „Með þessu móti varðveitum við sögu skepnunnar sem leðrið tilheyrði“ nefndi Gero þegar hann sýndi myndir af hinum ýmsu verkum sem hjónin höfðu unnið gegnum tíðina.

Nánar má skoða verk þeirra hjóna á http://www.julialohmann.co.uk/

Mynd sótt á:
http://www.julialohmann.co.uk/work/gallery/cow-benches/


Athugasemdir

21.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst