Kaffi með kvæðamönnum Rímu

Kaffi með kvæðamönnum Rímu Kaffi með kvæðamönnum Rímu í Þjóðlagasetrinu kl. 15:30 sunnudaginn 25. nóvemberAllir velkomnir.Kvæðamannafélagið Ríma kemur

Fréttir

Kaffi með kvæðamönnum Rímu

Kaffi með kvæðamönnum Rímu í Þjóðlagasetrinu kl. 15:30 sunnudaginn 25. nóvember
Allir velkomnir.

Kvæðamannafélagið Ríma kemur saman á hverjum sunnudagseftirmiðdegi, oftast í Þjóðlagasetrinu.

Næst komandi sunnudag kl. 15:30 langar okkur að bjóða hverjum sem vill að koma til okkar í Setrið.

Við munum kveða saman og fá okkur kaffi, pönnukökur og fleira góðgæti.

Höldum gleði hátt á loft
helst það seður gaman
þetta skeður ekki oft
að við kveðum saman

- kaffi - te - kakó -
- reykt - sætt - steikt -
- kvæðalög - tvísöngvar -
- fimmudalög - þjóðlög -

Falla tímans voldug verk
varla falleg baga
snjalla ríman stuðla sterk
stendur alla daga


Athugasemdir

21.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst