Langþráður dagur á Síldarminjasafninu
Katrín Jakobsdóttir ráðherra og Ásta Magnúsdóttir ráðuneytisstjóri komu gagngert til Siglufjarðar með samninginn og skrifaði Guðmundur Skarphéðinsson formaður safnstjórnar undir ásamt ráðherra.
Samningurinn er til tveggja ára og kveður á um hlutverk safnsins á landsvísu. Þar er lýst mjög metnaðarfullum markmiðum og í fullu samræmi við reynsluna og þau áform sem forráðamenn safnsins hafa kynnt fyrir landsstjórnendum.
Að baki þessum sérstæða samningi sem undirritaður er á kreppu- og niðurskurðartímum er mjög breið og þverpólitísk samstaða.
Safnstjórn og starfsmenn safnsins lýsa yfir mikilli ánægju með samninginn og telja hann marka tímamót þar sem Síldarminjasafninu er tryggður rekstrargrunnur og ekki þarf lengur að standa í eilífum sendingum á styrkumsóknum og slítandi ferðum á fund fjárlaganefndarmanna og annarra áhrifamanna í þjóðfélaginu.



Athugasemdir