Langþráður dagur á Síldarminjasafninu

Langþráður dagur á Síldarminjasafninu Í gær var skrifað undir samning safnsins við menntamálaráðuneytið. Katrín Jakobsdóttir ráðherra og Ásta Magnúsdóttir

Fréttir

Langþráður dagur á Síldarminjasafninu

Katrín Jakobsdóttir og Guðmundur Skarphéðinsson við undirskrift samningsins. Mynd: Sveinn Þorsteinsson
Katrín Jakobsdóttir og Guðmundur Skarphéðinsson við undirskrift samningsins. Mynd: Sveinn Þorsteinsson
Í gær var skrifað undir samning safnsins við menntamálaráðuneytið.
Katrín Jakobsdóttir ráðherra og Ásta Magnúsdóttir ráðuneytisstjóri komu gagngert til Siglufjarðar með samninginn og skrifaði Guðmundur Skarphéðinsson formaður safnstjórnar undir ásamt ráðherra.


Samningurinn er til tveggja ára og kveður á um hlutverk safnsins á landsvísu. Þar er lýst mjög metnaðarfullum markmiðum og í fullu samræmi við reynsluna og þau áform sem forráðamenn safnsins hafa kynnt fyrir landsstjórnendum.

Að baki þessum sérstæða samningi sem undirritaður er á kreppu- og niðurskurðartímum er mjög breið og þverpólitísk samstaða.

Safnstjórn og starfsmenn safnsins lýsa yfir mikilli ánægju með samninginn og telja hann marka tímamót þar sem Síldarminjasafninu er tryggður rekstrargrunnur og ekki þarf lengur að standa í eilífum sendingum á styrkumsóknum og slítandi ferðum á fund fjárlaganefndarmanna og annarra áhrifamanna í þjóðfélaginu.

 

 

 

 



 

 

 
 

Athugasemdir

17.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst