Leikskálar Siglufirði
Það er líf og fjör í leikskólanum á bóndadaginn, börnin buðu pabba og afa í morgunkaffi. Börnin
sýndu þeim leikskólann og það leikefni sem þau eru að vinna með, á
elstu deildinni var sungið í Hliðarenda koti og tóku allir pabbar og
afar undir.
Á
leikskóla Fjallabyggðar eru 92 börn, 38 börn á Leikhólum Ólafsfirði
og 54 börn á Leikskálum Siglufirði. Í leikskólanum er lögð áhersla á
skapandi starf og leik barnsins. Af leik sprettur ný þekking, nýjar
tilfinningar, athafnir og leikni. Starfsfólk Leikskóla Fjallabyggðar
hefur hlýju, virðingu og umburðarlyndi að leiðarljósi í samskiptum sínum
við börnin.
Á leikskólanum er verið að vinna með dygðir. Fyrir áramót
var unnið með Vinsemd og nú er það Glaðværð. Við temjum okkur
glaðværð með því að gera allt sem við tökum okkur fyrir hendur með glöðu
hjarta. Leyfum ekki neikvæðum hugsunum að komast að. Njótum góðu
hlutanna sem gerast.
Þegar erfiðleikar steðja að leyfum þá áhuggjum og sorginni að koma en leyfum þeim líka að fara. Hugsum jákvætt um allt sem gerist og reynum að læra af því og horfa á björtu hliðarnar. Verum glöð og leyfum kímnigáfunni að njóta sín. Hlátur er hollur fyrir sálina og eflir glaðværðina.
Texti: Kristín María Hlökk Karlsdóttir
Myndir: GJS
Athugasemdir