Leikskólinn Leikskálar

Leikskólinn Leikskálar Ég smellti af nokkrum myndum af krökkunum í leikskólanum í gćr. Mikiđ stuđ var á krökkunum og flest allir vildu lofa mér ađ taka

Fréttir

Leikskólinn Leikskálar


Ég smellti af nokkrum myndum af krökkunum í leikskólanum í gær.
 
Mikið stuð var á krökkunum og flest allir vildu lofa mér að taka myndir.
 
Fóstrurnar voru hins vegar ögn erfiðari í samningaviðræðum um myndatöku en sættir náðust um að ég fengi að taka myndir af þeim seinna. 
 
En yngstu íbúarnir í sveitafélaginu vildu ólm láta taka myndir af sér og helst margar.
 
Svona á þetta að vera. Það er einhvernveginn miklu skemmtilegra þegar maður er beðin um að taka myndir.
 
Ég fékk til dæmis nokkru sinnum þessa spurningu "ætlarðu ekki örugglega að taka mynd af mér líka?". Og svo að sjálfsögðu vildu nokkrir fá að sjá myndina sem ég tók til að samþykkja að hún væri í lagi. 
 
Flottir krakkar sem við eigum í Fjallabyggð.
 
leikskolinn
 
leikskolinn
 
leikskolinn
 
leikskolinn
 
leikskolinn
 
leikskolinn
 
leikskolinn
 
leikskolinn
 
leikskolinn
 
leikskolinn
 

Athugasemdir

04.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörđur
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgiđ okkur á Facebook eđa Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst