Leiksýning Grunnskóla Fjallabyggðar
sksiglo.is | Almennt | 30.03.2011 | 15:32 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 353 | Athugasemdir ( )
Grunnskóli Fjallabyggðar frumsýnir leikverkið Irisi eftir Brynhildi Guðjónsdóttur og Ólaf Egil Egilsson miðvikudaginn 30. mars kl. 20:00 í Allanum.
Um er að ræða nýtt verk sem skrifað var sérstaklega fyrir Þjóðleik en það er samstarfsverkefni Þjóðleikshúsins og ýmsa leikhópa á Norðurlandi. Það eru unglingar í leiklistarvali grunnskólans sem flytja verkið. Miðaverð er 1000 krónur fyrir fullorðna en frítt fyrir börn 16 ára og yngri. Önnur sýning verður svo fimmtudaginn 31. mars kl 20:00 Athugið að þessi sýning er ekki við hæfi ungra barna.



Athugasemdir