Leó Óla hörku skemmtilegur penni

Leó Óla hörku skemmtilegur penni Ég hafði samband við Leó Óla og fékk leyfi til þess að setja á síðuna hjá okkur það helsta sem Leó setur á sína síðu.

Fréttir

Leó Óla hörku skemmtilegur penni

Ég hafði samband við Leó Óla og fékk leyfi til þess að setja á síðuna hjá okkur það helsta sem Leó setur á sína síðu.

Ég hef oft farið inn á síðuna hjá Leó og hreinlega velst um að hlátri við lesturinn. Leó er mjög skemmtilegur penni og kemur oftar en ekki með nýjan vinkil á málefnin. 

Hér er linkur á síðuna hans Leós.  http://leor.123.is/

Ég fékk líka leyfi hjá Leó til þess að setja annað slagið inn efni frá honum inn á síðuna hjá okkur sem er alveg meiriháttar viðbót við siglo.is

Þetta sem ég ætla að taka frá síðunni hans Leós núna er um bílinn hans Gylfa Ægis og er ansi skemmtileg lesning.

Mynd við frétt á siglo.is tók Gulli Stebbi.

29.08.2013

Bíllinn hans Gylfa

 Ég rakst á Gylfa Ægis í Bónus á Hrauninu í Hafnarfirði þar sem hann tíndi eitt og annað smálegt í körfu sína meðan hann átti orðastað við mann og annann sem köstuðu á hann kveðju sinni. Auðvitað hlaut hann að þekkja marga hér um slóðir því hann bjó lengi á Suðurgötunni í Hafnarfirði, nema það sé bara eins og svo oft að fleiri telja sig þekkja manninn á stallinum en maðurinn þá.

Það fór sem sagt ekkert á milli mála hver var á ferðinni innandyra og þá ekki síður þegar út var komið eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Það verður tæpast annað sagt en að ökutækið sé vel nýtt til að auglýsa þá starfsemi og og þær afurðir sem eigandinn er þekktur fyrir, auk þess sem það þjónar eflaust sínu venjubundna hlutverki ekkert síður en önnur slík.

Hér fer og það eflaust víða, bæði mikil og góð auglýsing sem er líkleg til að koma þeim sem berja hana augum í betra skap og sjá lífið og tilveruna í bjartari litum eftir en áður. Alla vega var það mín upplifun. 


En það er hins vegar ekki ósennilegt að einhverjir komist ekki hjá því að láta hina fjölmöru ryðbletti sem hætt er við að fari ört stækkandi á næstunni, trufla hina jákvæðu heildarmynd og ég myndi því ráðleggja okkar manni að taka á því máli hið allra fyrsta. 


Ég fór allan hringinn og myndaði bílinn, en það var ekki fyrr en ég tók þessa mynd að ég tók eftir (sambýlis)konu Gylfa, (veit reyndar ekki hver hjúskaparstaða þeirra er) þar sem hún gætti bíls og beið þess undir stýri að hann kæmi úr búðarferðinni. 
Ég skal viðurkenna að ég varð pínulítið kindarlegur...



Athugasemdir

04.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst