Lesið úr nýrri bók.
sksiglo.is | Almennt | 29.07.2011 | 12:00 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 142 | Athugasemdir ( )
Í haust gefur Veröld út
ævisögu séra Bjarna Þorsteinssonar tónskálds og þjóðlagasafnara, sem
nefndur hefur verið "faðir Siglufjarðar," en Bjarni skipulagði byggðina á
Siglufjarðareyri og barðist manna mest fyrir kaupstaðarréttindunum sem
fengust 1918.
Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur skrifar ævisögu Bjarna og mun lesa úr henni, í fyrsta sinn, í Þjóðlagasetri Bjarna Þorsteinssonar við Norðurgötu á Siglufirði í dag, föstudag, kl. 17. Viðar hefur grafið upp ýmsar heimildir, meðal annars ástarbréf Bjarna til Sigríðar Lárusdóttur Blöndal, en Bjarni og Sigríður voru fjögur ár í festum áður en þau giftu sig.
Texti: Aðsendur
Mynd: GJS

Athugasemdir