Liðin tíð
sksiglo.is | Almennt | 22.07.2011 | 15:00 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 264 | Athugasemdir ( )
Það er liðin tíð að síldarpilsin hangi á snúrum og húsveggjum um allan bæ. Lengi eitt helsta einkenni Siglufjarðar. Þau eru kannski tvö eða þrjú eftir, pils síldarstúlknanna, Biddu, Laufeyjar, Systu og þeirrar allra yngstu, Svanhildar Sigurðardóttur.
Þegar sleppir tunnunum taka svunturnar við. Fyrst sér maður þær í búðargluggunum ofar í bænum. Þær hanga að segja má í hverjum einasta glugga — nema kannski gluggum kjötbúða og skartgripasala. Síðan sér maður svunturnar við íbúðarhúsin.
Og ef farið er um bæinn að næturlagi hanga þær við hvert einasta hús — að ég held undantekningarlaust. Og þá er ekki minnst af þessum gulu kjörgripum við bragga síldarstúlknanna. Á snögum og nöglum allt um kring braggana hanga þær, misjafnlega sterkgular, en vel þvegnar og hreinar.“
Texti og mynd: ÖK
Athugasemdir