Litlu jólin hjá Birtingi

Litlu jólin hjá Birtingi Birtingur útgáfufélag er með söluver hérna á Siglufirði og hjá þeim eru 10 starfsstöðvar og er hringt út frá kl 18-22 fjóra daga

Fréttir

Litlu jólin hjá Birtingi

Litlu jólin hjá Birting

 
Birtingur útgáfufélag er með söluver hérna á Siglufirði og hjá þeim eru 10 starfsstöðvar og er hringt út frá kl 18-22 fjóra daga vikunnar.  

Þetta er góð leið fyrir þá sem vilja næla sér í aukapening, samhliða námi eða öðru starfi og hefur eiginlega komið að einhverju leyti í stað þess að fá aukavinnu í fiskvinnslu til dæmis. 

Starfsfólk hefur staðið sig frábærlega vel í söluverinu og fram að jólum var keppni á meðal starfsmanna um söluhæsta starfsmanninn. Torfi Sigurðsson, sem var einn af þeim söluhærri hlaut Apple TV í vinning. 

Einnig voru önnur verðlaun veitt, m.a. fyrir bestu mætinguna. 

Meðfylgjandi eru myndir af litlu jólunum sem haldin voru 16. desember á Allanum
Birtingur er einnig með söluver í Reykjavík.
 
birtingurMikael Elí (Foreldrar Edda Henný og Addi Óla) var sérstakur aðstoðarmaður á litlu jólunum.
 
birtingurHér bíður hann eftir því að fá að dreifa jólapökkunum.
 
birtingurHilmar og Mikael sáu um að dreifa pökkunum.
 
birtingurHér er Mikael Elí að gefa Ólöfu Rún sinn jólapakka.
 
birtingurHér er verið að draga úr hattinum hver hlýtur stóra vinninginn. Ólöf Rún lengst til vinstri, Hafey og Torfi. 
 
birtingurOg Torfi gat engan vegið hamið sig í gleðilátunum þegar það kom í ljós að hann hefði unnið stóra vinninginn.
 
birtingurTorfi sæll og glaður.
 
birtingurOg hér er svo allur hópurinn.
Fremri röð frá vinstri: Lára, Kristinn Freyr, Jón Kort, Vitor, Hulda, Ólöf Rún, Hilmar og Mikael Elí. 

Aftari röð frá vinstri: Hafey, Biggi, Torfi og Kristófer Andri.

 

Athugasemdir

29.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst