Ljóðasetrið.
sksiglo.is | Almennt | 22.06.2010 | 12:30 | Bergþór Morthens | Lestrar 466 | Athugasemdir ( )
Þórarinn Hannesson vinnur nú hörðum höndum að því að opna Ljóðasetrið í húsnæði Videovals að Túngötu 5.
Í ljóðasetrinu verður íslenskri ljóðlist gerð skil með ýmsum hætti.
Ljóðasetrið verður svo sannarlega skemmtileg og góð viðbót við safnaflóruna á Siglufirði.
Fjölbreytt lista- og menningarlíf er mikilvæg stoð til þess að styðja við bæjarfélagið og verður spennandi að fylgjast með þróun Ljóðasetursins.
Siglufjörður hefur á undanförnum árum verið að marka sér sess sem ferðamannabær og við höfum uppá svo margt að bjóða.
Öflugt menningarlíf hjálpar til við að við að skapa ákveðið andrúm í bænum sem gerir hann eftirsóknarverðann fyrir fólk til að búa í og sérstaklega til þess að sækja heim.
Það er því fagnaðarefni að sjá Ljóðasetrið rísa. Tóti (Þórarinn Hannesson) stefnir að því að opna Ljóðasetrið í lok júlí eða í kringum Síldarævintýrið.

Athugasemdir