Ljóðskáld í Herhúsinu

Ljóðskáld í Herhúsinu Eistneska ljóðskáldið og smásagnahöfundurinn Kätlin Kaldmaa er nú komin aftur í Herhúsið.

Fréttir

Ljóðskáld í Herhúsinu

Kätlin Kaldmaa. Ljósmynd, Herhúsið.
Kätlin Kaldmaa. Ljósmynd, Herhúsið.
Eistneska ljóðskáldið og smásagnahöfundurinn Kätlin Kaldmaa er nú komin aftur í Herhúsið.

Kätlin sem var í Herhúsinu í 10 daga í desember 2009 er komin aftur til að halda áfram með verk sem hún var byrjuð á.

Það er töluvert önnur upplifun sem að hún fær af Sglufirði í þetta skiptið.  Hún kom hingað í mesta skammdeginu þegar hún var hér fyrst við störf en er nú að upplifa lengstu daga ársins.
 
Kätlin er ljóðskáld og smásagnahöfundur og vinnur nú að ritstörfum sínum í Herhúsinu.

Það verður gaman að sjá hvort Kätlin verði aftur með kynningu á verkum sínum en síðast þegar hún var hér las hún upp ljóð sín og sögur og söng eistneskt síldarlag fyrir viðstadda.

Herhúsið á Siglufirði heldur því  áfram að trekkja að sér skemmtilega og góða listamenn, jafnt innlennda sem erlenda.

Það er mikil lyftistöng fyrir samfélagið okkar að fá gestalistamenn í Herhúsið og gaman að upplifa sýn þeirra á samfélagið sem við búum í.




Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst