Ljóðskáld í Herhúsinu
sksiglo.is | Almennt | 30.06.2010 | 08:00 | Bergþór Morthens | Lestrar 202 | Athugasemdir ( )
Eistneska ljóðskáldið og smásagnahöfundurinn Kätlin Kaldmaa er nú komin aftur í Herhúsið.
Kätlin sem var í Herhúsinu í 10 daga í desember 2009 er komin aftur til að halda áfram með verk sem hún var byrjuð á.
Það er töluvert önnur upplifun sem að hún fær af Sglufirði í þetta skiptið. Hún kom hingað í mesta skammdeginu þegar hún var hér fyrst við störf en er nú að upplifa lengstu daga ársins.
Kätlin er ljóðskáld og smásagnahöfundur og vinnur nú að ritstörfum sínum í Herhúsinu.
Það verður gaman að sjá hvort Kätlin verði aftur með kynningu á verkum sínum en síðast þegar hún var hér las hún upp ljóð sín og sögur og söng eistneskt síldarlag fyrir viðstadda.
Herhúsið á Siglufirði heldur því áfram að trekkja að sér skemmtilega og góða listamenn, jafnt innlennda sem erlenda.
Það er mikil lyftistöng fyrir samfélagið okkar að fá gestalistamenn í Herhúsið og gaman að upplifa sýn þeirra á samfélagið sem við búum í.

Athugasemdir