Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar Nemendur í 7. bekk hafa lagt rækt við vandaðan upplestur á undanförnum mánuðum en síðastliðinn þriðjudag var

Fréttir

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar

www.fjallaskolar.is
www.fjallaskolar.is

Nemendur í 7. bekk hafa lagt rækt við vandaðan upplestur á undanförnum mánuðum en síðastliðinn þriðjudag var lokahátíð keppninnar. Þetta kemur fram á vef grunnskólanna í Fjallabyggð www.fjallaskolar.is.

Alls tóku níu nemendur þátt í keppninni sem fram fór í Tjarnarborg og komu þeir frá Árskógsskóla, Dalvíkurskóla og Grunnskóla Fjallabyggðar. Lokahátíðin en einskonar uppskeruhátíð nemendanna sem lagt hafa allt kapp á að læra vandaðan upplestur.
Í fyrsta sæti var Álfheiður Agla Oddbjörnsdóttir úr Grunnskóla Fjallabyggðar, Amanda Guðrún Bjarnadóttir úr Árskógsskóla lenti í öðru sæti og Guðrún Fema Sigurbjörnsdóttir úr Grunnskóla Fjallabyggðar lenti í því þriðja.
Við óskum krökkunum innilega til hamingju með árangurinn.

Nánar má lesa um fréttina og skoða fleiri myndir á www.fjallaskolar.is


Athugasemdir

15.september 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst