Lopi vonast eftir ferðafélaga

Lopi vonast eftir ferðafélaga Sameiningartrefillinn fíni er kominn vel á skrið og eru nú tæpir 5,5km tilbúnir. Fjárfest hefur verið í meiri lopa sem

Fréttir

Lopi vonast eftir ferðafélaga

Mynd tekin af heimasíðu Fríðu; www.frida.is
Mynd tekin af heimasíðu Fríðu; www.frida.is

Sameiningartrefillinn fíni er kominn vel á skrið og eru nú tæpir 5,5km tilbúnir. Fjárfest hefur verið í meiri lopa sem býður þess að komast á Siglufjörð, um strákagöng að þessu sinni.

 

Eins og kunnugt er veitti Ístex góðan afslátt af lopa til verkefnisins og fjöldinn allur af fyrirtækjum og einstaklingum hafa lagt verkefninu lið. Treflabútum hefur rignt inn allstaðar af á landinu og jafnvel erlendis frá og viðtökurnar því verið frábærar.

Fjármagn hefur nú fengist fyrir meiri lopa og að sögn Fríðu bíða margir kassar af honum í Ístex, Mosfellsbæ, eftir að hjálpsamir Siglfirðingar grípi þá með sér á leið úr borginni. Þeir sem pláss hafa í bílum sínum eru því hvattir til að renna við og taka með sér eins og einn eða tvo kassa til Siglufjarðar.


Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst