Lopi vonast eftir ferðafélaga
Sameiningartrefillinn fíni er kominn vel á skrið og eru nú tæpir 5,5km tilbúnir. Fjárfest hefur verið í meiri lopa sem býður þess að komast á Siglufjörð, um strákagöng að þessu sinni.
Eins og kunnugt er veitti Ístex góðan afslátt af lopa til verkefnisins og fjöldinn allur af fyrirtækjum og einstaklingum hafa lagt verkefninu lið. Treflabútum hefur rignt inn allstaðar af á landinu og jafnvel erlendis frá og viðtökurnar því verið frábærar.
Fjármagn hefur nú fengist fyrir meiri lopa og að sögn Fríðu bíða margir kassar af honum í Ístex, Mosfellsbæ, eftir að hjálpsamir Siglfirðingar grípi þá með sér á leið úr borginni. Þeir sem pláss hafa í bílum sínum eru því hvattir til að renna við og taka með sér eins og einn eða tvo kassa til Siglufjarðar.




Athugasemdir