Málarar gera víðreist

Málarar gera víðreist Það er búið að vera brjálað að gera hjá Siglfirska málaragenginu í sumar. Það eru ófá húsin sem þeir eru búnir að taka í gegn á

Fréttir

Málarar gera víðreist

Doddi, Stebbi, Mark og Baldi nýjasti meðlimur málaragengisins
Doddi, Stebbi, Mark og Baldi nýjasti meðlimur málaragengisins
Það er búið að vera brjálað að gera hjá Siglfirska málaragenginu í sumar. Það eru ófá húsin sem þeir eru búnir að taka í gegn á Siglufirði í sumar og er bærinn okkar fallegri fyrir vikið.


Þeir félagar voru staddir á Ólafsfirði í vikunni þar sem þeir ásamt flest öllum iðnaðarmönnum á Ólafsfirði eru að vinna hörðum höndum að gagngerum endurbótum á gamla gagnfræðiskólahúsinu sem nú gengur í endurnýjun lífdaga.

Menntaskólinn á Tröllaskaga tekur til starfa um miðjan ágúst og þarf því að hafa hraðar hendur. En eins og máltækið segir þá vinna margar hendur létt verk og rífandi gangur er í framkvæmdum.

Málararnir gáfu sér þó smá tíma til þess að ræða við fréttamann um hin og þessi mál auk þess sem þeir stilltu sér upp fyrir myndavélina.

Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst