Mannlífið á Siglufirði.

Mannlífið á Siglufirði. Það var mikið um að vera við höfnina á Siglufirði í gær, margir línu- og handfærabátar að landa sæmilegum afla. Margir

Fréttir

Mannlífið á Siglufirði.

Verið að landa úr línubátum
Verið að landa úr línubátum
Það var mikið um að vera við höfnina á Siglufirði í gær, margir línu- og handfærabátar að landa sæmilegum afla. Margir aðkomubátar eru í viðskiptum við Siglufjarðarhöfn, líkt og undanfarin sumur, og fá þeir góða þjónustu hjá þeim fyrirtækjum sem þeir þurfa að skipta við.

Einnig er unnið að viðgerðum á götum og gangstéttum sem skornar voru upp af Rarik á síðasta ári þar sem leggja þurfti rafmagnsstrengi um bæinn. Byrjað er að vinna við Snorragötu við jarðvegsskipti en malbiksverkinu miðar hægt, þessi framkvæmd er gerð á mesta ferðamannatímanum. Bæjarvinnan er í fullum gangi hjá skólafólkinu við gróðursetningar og slátt og mikið líf í bænum og allt að gerast, eins og sagt er.



Beðið eftir löndun.



Verið að landa.







Verið að mála Viggó SI.



Strandblaksvöllurinn er vinsæll á Rauðkulóð



Hannes Boy og Kaffi Rauðka.



Ferðamenn.



Viðgerðir á gangstéttum.



Meistararnir, Björn og Njörður.



Sláttur við Fossveg.



Sláttur í görðum.



Ferðamenn.



Ferðamenn.

 
Rósa Bjarnadóttir forstöðumaður Bóka- og héraðsskjalasafns Fjallabyggðar en veitir einnig forstöðu Upplýsingamiðstöð ferðamála á Siglufirði sem starfrækt er á bókasafninu í sumar.



Á mesta ferðamannatíma er Snorragatan lokuð og ekkert verið að vinna í henni. Umferðinni beint á íbúðargötu.



Snorragata lokuð.

Texti og myndir: GJS


Athugasemdir

08.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst