Minnihlutinn finnur að vinnubrögðum.

Minnihlutinn finnur að vinnubrögðum. Eitt stærsta álitamálið í bæjarstjórn Fjallabyggðar þessa dagana er án vafa viðbyggingar við skólahús

Fréttir

Minnihlutinn finnur að vinnubrögðum.

Eitt stærsta álitamálið í bæjarstjórn Fjallabyggðar þessa dagana er án vafa viðbyggingar við skólahús grunnskólans í byggðarlaginu. Þetta endurspeiglast í bókun minnihlutans á síðasta bæjarstjórnarfundi.

Bókun minnihlutans á fundi Bæjarstjórnar 8. febrúar 2012

Við undirrituð viljum vara við þeim hraða sem einkennir undirbúning viðbyggingar grunnskólans í Ólafsfirði. Á þessum árstíma getur verið mjög varasamt að vinna 2,5 metra grunn án þess að hann frjósi. Það er engin trygging fyrir því að það vori snemma á árinu 2012.

Hvað gerist ef það verður frostatíð næstu 2-3 mánuðina, hver ber ábyrgð á slíkri seinkun?  Múr þarf tíma til að þorna. Það sýndi sig í þenslunni í Reykjavík að hús sem voru byggð með miklum hraða að gallar komu í ljós í mörgum tilfellum. Heimaaðilar og reyndar nokkrir aðrir bjóðendur gera sér grein fyrir því að útilokað er að skila byggingunni, fullkláraðri, fyrir 1. sept 2012. Mun Fjallabyggð veita afslátt síðar meir, eftir að tilboði hefur verið tekið, á lokaafhendingu þann 1. sept. 2012

Minnihlutinn leggur áherslu á að hagstæðasta tilboðið fyrir bæjarsjóð er ekki endilega það lægsta. Vert er að geta þess að heimaaðilar (bjóðendur) hafa ávallt sýnt ábyrgð og áreiðanleika í rekstri.

Bókun minnihlutans á fundi Bæjarstjórnar 8. febrúar 2012




Athugasemdir

27.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst