Minningarmót um látna félaga

Minningarmót um látna félaga Síđastliđinn laugardag fór fram minningarmót um látna félaga hjá Blakklúbbunum hér í Siglufirđi, Hyrnan og Súlur. Ađ venju

Fréttir

Minningarmót um látna félaga

Innsent efni.

 

Síðastliðinn laugardag fór fram minningarmót um látna félaga hjá Blakklúbbunum hér í Siglufirði, Hyrnan og Súlur.

 

Að venju var mæting góð á mótinu og sumir komu langt að til að taka þátt. Dregið var í lið fyrir hverja umferð og spiluðu karlar og konur saman að venju í þessu móti. Veitt voru verðlaun fyrir stigahæðstu einstaklinganna í karla og kvennaflokki sem og fyrir tilþrifmótsins, jákvæðasti spilarinn og fýlupúka mótsins.

 

Baráttan var hörð um sigursætin en Dagný Finnsdóttir varð efst hjá dömunum og Þórarinni Hannessyni var dæmdur sigur í karlaflokki.

 

Tilþrif mótsins hlaut Dagný Finnsdóttir með ótrúlega fótafimi í annari umferð.

 

Jákvæðasti spilarinn var valin Aðalbjörg Þórðardóttir en brosið fer sjaldan af þessari dömu og er hún blakíþróttinni til sóma jafnt utan sem innan vallar.

 

Fýlupúkinn verður ekki nafngreindur því leikmaðurinn tók sig verulega á um miðbik mótsins og brosti að sem eftirlifði dags.

 

Blakklúbbarnir á Siglufirði

blak

 

blak

 

blak

 

blak

 

blak

 

blak

 

blak

 

blak

 

blak

 

blak

 

blak

 

blak

 

blak

 

blak

 

blak

 

blak


Athugasemdir

27.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörđur
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgiđ okkur á Facebook eđa Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst