Mottumars hefst í dag.

Mottumars hefst í dag. Mottumars, árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsélags Íslands hefst í dag 1. mars. Árlega greinast að meðaltali 716

Fréttir

Mottumars hefst í dag.

Birgir Ingimarsson vinningshafi mottumarskeppninnar á Siglufirði í fyrra.Ljósm. G.S.G.
Birgir Ingimarsson vinningshafi mottumarskeppninnar á Siglufirði í fyrra.Ljósm. G.S.G.


Mottumars, árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsélags Íslands hefst í dag 1. mars.
Árlega greinast að meðaltali 716 karlmenn með krabbamein hér á landi og um 250 deyja af orsökum þess.


Rannsóknir sýna að koma má í veg fyrir að minnsta kosti eitt krabbameinstilfelli af hverjum þremur.

Með því að skrá sig á heimasíðu krabbameinsfélagsins, sem er www.mottumars.is, geta karlmenn efnt til eigin fjáröflunar til að styrkja málefnið. Bæði einstaklingar og lið geta skráð sig til þátttöku í mottusamkeppnina en vefurinn verður opnaður formlega í dag.

Vel þótti takast til með mottumars í fyrra og mátti hvarvetna sjá karlmenn skarta yfirvaraskeggi. Þeir sem vilja leggja þessu málefni lið geta því gert það í formi áheita en karlmenn eru auðvitað hvattir til að skrá sig til leiks og um leið leggja rakvélina á hilluna.
 


Athugasemdir

12.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst