Myndir frá Sveini Ţorsteins. Ţorrablót á Skálarhlíđ

Myndir frá Sveini Ţorsteins. Ţorrablót á Skálarhlíđ Sveinn Ţorsteinsson sendi okkur myndir frá Ţorrablóti sem var haldiđ á Skálarhlíđ fyrir stuttu

Fréttir

Myndir frá Sveini Ţorsteins. Ţorrablót á Skálarhlíđ

Sveinn Þorsteinsson sendi okkur myndir frá Þorrablóti sem var haldið á Skálarhlíð fyrir stuttu síðan.
 
Það er greinilegt að þetta hefur verið heljarinnar veisla og menn og konur skemmt sér konunglega.
Sveinn og Hjálmar slógu á létta strengi og sýndu skemmtileikrit um gamlan landabruggara, síldarspegúlant og anda í flösku. Eitthvað kemur vínandi við sögu í leikritinu og jafnvel einhverjar flöskur.
 
Eftir leikrit og mat spilaði Hjálmar á harmonikku og svo var að sjálfsögðu sungið með.
 
Flottar myndir hjá Svenna og gaman að skoða.
 
svenniAnton Jóhannsson, Sigurður Benediktsson og Jónas Björnsson.
 
svenniHér bregða Sveinn og Hjálmar á leik.
 
svenniSteingrímur Kristinsson, Guðný Ósk Friðriksdóttir og Berta Jóhannsdóttir
 
svenniValur Johansen
 
svenniHjálmar Jónsson með harmonikkuna góðu.
 
svenniSveinn Þorsteinsson.
 

Svo er meira af myndum frá þorrablótinu á síðunni hans Steingríms sem og stutt myndband af þorrasöng þeirra Sveins og Hjálmars.

Slóðin á síðuna hjá Steingrími er hér : www.sk21.is

Athugasemdir

13.september 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörđur
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgiđ okkur á Facebook eđa Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst